Tuesday, December 23, 2008

Þorláksmessa

Það er gott að halda Þorláksmessu loksins á Íslandi þar sem allir í kringum mann eru í sama gír og skilja út á hvað málið gengur.
Nóttin var fín, Guðbergur Davíð svaf best þessa nótt af þessum 3 sem liðnar eru. Ég svaf a.m.k. í 7 klukkutíma í einni lotu og var bara þrælþreytt þegar ég vaknaði, greinilega mikil vinna að sofa svona lengi í einu hehe. Ég og börnin ætlum svo að færa okkur inn í okkar hús næstu nótt því mig langar ekki að fara að sofa kl.21 í kvöld heldur aðeins seinna, en börnin verða að vera að mestu í sínum svefnrútínum svo allt gangi sem best fyrir sig. Ég ætla meira að segja að fá mér súkkulaðikaffibolla í dag með rjóma og bismark til að ég haldist hress fram að miðnætti.
Lifið heil!

Sunday, December 21, 2008

Svefn

Þessa dagana erum við að taka á svefni Guðbergs Davíðs og er hann að læra að súpa ekki hjá mömmslunni sinni á nóttunni. Nú eru 2 nætur búnar og hann er frekar reiður og pirraður yfir þessu ástandi á tímum ljóss og friðar. Nóttin í nótt var þó skárri en fyrri nóttin svo þetta hlýtur að koma. Ég og börnin sofum í skólahúsinu og höfum það agalega huggulegt. Þau búa sig á kvöldin í náttfötin og svo útifötin utan yfir og setja á sig bakpoka með börnunum sínum í og skottast með mér yfir. Þeim finnst þetta aaaalgjört æði! Mér finnst þetta gaman líka. Ég náði meira að segja að sofa svolítið í nótt og held ég að ég hafi sofið frá 22:15 - 5:30 og hefur það ekki gerst í ca.ár. Ég er að uppgötva þessa dagana hvað ég er í raun búin að vera svefnlaus lengi. Ekkert skrítið að mér finnist ég ekkert vita, geta, muna eða skilja. Vonandi kemur þetta allt saman eftir því sem börnin stækka.
Í dag er allt á kafi í snjó við ætlum að halda áfram að undirbúa heimilið fyrir jólin.
Það var nú eitthvað fleira sem ég ætlaði að skrifa en man það bara ekki, enda ný búin að tala um minnisleysi......eða var það ekki annars?................

Friday, December 19, 2008

Ýmislegt

Í gær fékk ég þær dapurlegu fréttir að fullorðin frænka mín frá Vestmannaeyjum væri látin. Hún hefur hringt í mig fyrir jólin síðan ég flutti til USA og hringdi einmitt nú í byrjun desember. Mér þótti alltaf svo vænt um að heyra í henni og tilhugsunin um að hún sé farin er tómleg.

Annað er það að frétta að Margrét María fór á 1. skólajólaballið sitt í morgun og urðu hún og Árni Jökull vinur hennar í næsta húsi samferða. Þau voru bæði í sínu fínasta pússi og fékk ég þá tilfinningu að þau væru að fara á PROM ball :o) Vonandi næst mynd af þeim saman.

Sigurjón Óli hefur verið með hita í nokkra daga en rétt náði að verða hress fyrir leikskóla jólaballið sem var á miðvikudaginn. Hann skemmti sér vel.

Guðbergur Davíð sefur illa á nóttunni. Við Ágúst reynum að skiptast á að sofa inni hjá Sigurjóni Óla svo við séum ekki bæði svefnlaus. GD er með vökva í eyrunum og líklega er undirþrýstingur að valda þessu svefn vandamáli hjá honum, en ég þarf að komast betur að hvort svo sé.

Nýja eldhúsið okkar verður sett upp í byrjun janúar. Við verðum reyndar hvorugt heima og ætlum við því núna um helgina að pakka niður öllu úr eldhúsinu nema því allra nauðsynlegasta, sem verður pakkað niður 2.í jólum rétt áður en Ágúst leggur af stað suður. Hann fer semsé keyrandi suður þann dag og ég flýg með unganan snemma um morguninn.

Meira er ekki í fréttum að sinni, ég minni ykkur á að kíkja reglulega hér inn. Veriði sæl.

Sunday, December 14, 2008

Friday, December 12, 2008

Ekkert að frétta af engu

Það er hundleiðinlegt að lesa bloggið mitt þessa dagana því ég hef bara ekkert að segja. Er nánast ekki búin að gera neitt fyrir jólin og er bara að hamast við að taka upp úr seinustu kössunum. Annað var það nú ekki í þetta skiptið.