Friday, October 23, 2009

Ekki minnka veikindin...

...nema hjá Margréti, hún er líklega hitalaus í dag þó hún hósti svolítið enn og stefnir hún á að fara í skólann á mánudaginn.
Ég fór með Sigurjón Óla í lungnatékk í gær þar sem tekin var mynd, og hann er ekki með lungnabólgu en það þarf að fylgjast með honum og hann þarf að byrja aftur á pústunum sem hann fékk þegar hann var með lungnabólguna í febrúar.
Guðbergur Davíð er með ljótari hósta en áður og svaf ekki nema 1 klst. úti í vagninum í dag í stað 3-4 klst.
Ég er eldhress en Ágúst er lasanari en áður. Er nú með rúmlega 39° og mikinn höfðuverk og illt í bakinu. Hann sefur líka mjög illa.
Föstudagsknús, Kolbrún

Thursday, October 22, 2009

Og...

.....staðan í dag í er svona:
Ágúst er að skána en enn veikur.
Margét María er enn með hósta og bara lasin en ekki veik.
Sigurjón Óli er kominn með þurran, hvæsandi hósta, líður ekki nógu vel, leggur sig yfir daginn og var með 38° í gær. Ég fer með hann í lungnabólgutékk kl.10:20.
Guðbergur Davíð er farinn að hósta og er enn með smá kvef.
Ég sjálf er eiginlega hvorki veik né lasin en eitthvað er að mér samt. Hálsbólgan og lungnakvefið sem helltist í mig í fyrradag fór eiginlega bara í gær! Kannski vegna þess að nóttina áður náði ég að sofa óvenju lengi í einum dúr, 6-7 klukkutíma held ég bara, þar sem ekkert af börnunum vöknuðu og ég heyrði Margréti ekki hósta nema 1x. Líkami minn hlýtur að hafa glaðst svona yfir hvíldinni að hann sá sér enga ástæðu lengur til að vera að veikjast. Það er margt skrítið í kýrhausnum!

Tuesday, October 20, 2009

Einn bætist í hópinn........

..........og það er ég. Er með þyngsli fyrir brjóstinu og vísi að beinverkjum. Þetta er nú samt allt í lagi ennþá, en ég held ég ætti ekki að fara til vinnu í dag. Ágúst er að hósta svolítið mikið, SÓ líður betur en áður en er að hósta líka sem og MM. Hún var reyndar slappari í gær en hún hefur verið.
Hér er hiti í frostmarki og snjóalegt að sjá. Kannski við fáum nokkur snjókorn í dag, svona til að minna á jólaskapið, en ég er farin að hlakka mikið til jólanna og 66 dagar þar til jóladýrðin skellur á :o)

Monday, October 19, 2009

Meira um lasleika

Snýst ekki líf allra um flensur þessa dagana? Ekki ætla ég að vera eftirbátur í þeirri umræðu.
Staðan er þannig núna að Sigurjón Óli og Ágúst er báðir orðnir veikir. Margrét veiktist semsé á fimmudag ca., Sigurjón Óli á föstudag, Ágúst á laugardag og Davíð uppi og Árni Jökull hinum megin á sunnudag. Ég ætla ekki að leggjast í þessa flensu, enda þarf ég að sinna hinum. Þegar ég hringdi í morgun í leikskólann hans SÓ og tilkynnti hann veikan, sagði kennarinn mér að við værum nr.9 sem tilkynntum veikindi þann morguninn svo því virðist vera að flensurnar séu skollnar á okkur Austlendinga af fullum þunga. Guðbergur Davíð er enn með pínu hor en ekkert veikur. Þannig var það ágætu lesendur!

Thursday, October 15, 2009

Lasleiki

Já, Magrét María fór ekki í skólann í morgunn því hún er með hita. Hún er líka með ljóan hósta en líður annars bara vel. Vonandi er þetta bara eitthvað tilfallandi og að við hin sleppum.
Við skruppum til USA um daginn, yndislegt að hitta alla vinina og kunningjana aftur og að sama skapi gott að eiga "heim" á Íslandi þegar við komum til baka. Þegar við fluttum heim í fyrra vorum við bara að fara að "flytja heim til Íslands" en áttum ekkert sem við gátum kallað "heim". Ég held ég hafi meira að segja læknast af Ameríkuveikinni, þ.e.a.s. að vilja búa í Ameríku. Við keyrðum suður með strákana daginn fyrir brottför út og lögðum ekki af stað fyrr en um kvöldmatarleytið. Keyrðum í einum rykk og stoppuðum bara til að skiptast á að keyra og náðum að vera bara 7 klst.og 15 mínútur á leiðinni. Skrítið að keyra í þögn og myrkri í 7 tíma. Við vildum ekki hafa útvarpið á svo strákarnir myndu örugglega sofið.
Við vorum svo blessuð að geta komið Margréti Maríu fyrir hjá Unnari og Öldu uppi og 1 helgina var hún hjá Álfheiði og Bjarti á móti. Hún fór því í skólann og allt gekk sinn vanagang, fyrir utan að við ætluðum að hitta hana á haustmóti kirkjunnar okkar í Vatnaskógi þegar við komum heim en hún varð veðuteppt með Öldu og Unnar á Akureyri! Það voru því liðnar næstum 2 vikur frá því við höfðum séð hana seinast svo það urðu heldur betur fagnaðarfundir þegar við hittumst aftur. Sigurjón Óli var í dekri í sveitinni hjá afa og ömmu í Forsæti og sömuleiðis hjá afa og ömmu á Selfossi. Það fór afar vel um hann enda mikið ríkidæmi hjá honum að eiga 2 sett af öfum og ömmum. Takk öll sömul fyrir að redda okkur og nenna að gera þetta. KNÚS!!!!!!
Annars gengur bara allt sinn vanagang, tréin hér í sveitinni eru á sínum stað, sem og rokið og sólin, svo það er bara allt við það sama. Bless í bili.