Thursday, April 8, 2010

Loksins!

Hér eru nokkrar myndir af elskulegu börnunum okkar.

Margrét María að lesa fyrir bræður sína.


Börnin ásamt Árna Jökli vini þeirra að syngja fyrir pabba á öskudaginn.


Og sveitastelpan kyssir froskinn.
Posted by Picasa

Wednesday, January 13, 2010

Gleðilegt ár

Gleðilegt ár öll sömul. Hvað skal segja? Hmmmmmmmmm..................veðrið er í frostmarki, GD farinn út í vagn og eldri börnin í skóla og leikskóla. Fengum Bjart og Álfheiði á móti í mat í gærkvöldi og áttum með þeim góða stund yfir góðum mat sem ég töfraði fram eins og ég hefði aldrei gert neitt annað. Í dag ætla ég að klára að skipuleggja kennsluna fram á vor, það er að segja Forskólakennsluna þar sem ég kenni 6 og 7 ára börnum. Þau eldri læra á blokkflautur en hin yngri eru meira í leikjum og tónlistarþjálfun. Svo er aldrei að vita nema það bætist við mig þverflautunemendur. Í kvöld er svo fyrsti fundur okkar Ágústar í þorrablótsnefnd en það verður þorrablót í byrjun febrúar. Við höfum ekki áður farið á þorrablót hér í sveitinni, hvað þá komið í litla, sæta félagsheimilið. Ég þekki nokkra í nefndinni fyrir utan auðvita Ölduna og Unnarinn (sem búa uppi) og er það ángæjulegt. Mér skilst að tveir vinnufélagar mínir séu í nefndinni auk konu sem vinnur með Ágústi. Heimurinn er lítill úti á landi ef hægt er að orða það svo.
Segjum þetta gott í bili, knús, K.