Wednesday, January 14, 2009

Kaaaaaaaaalt

Ekki hér í sveitinni nei, heldur í Minneapolis. Það hefur ekki verið svona kalt hjá þeim í yfir 5 ár, en við erum að tala um 35 stiga frost með vindi og allt niður í 46 gráður aðeins norðar. Mig dauðlangar að upplifa þetta en er á sama tíma fegin -12 stigunum hér, án vinds.

Ég er á fullu að gera eldhúsið klárt áður en Ágúst kemur úr Ameríkuvinnuferðinni. Byrjaði í dag að raða inn í skápa og gekk það vel þrátt fyrir 2 talandi börn og eitt skælandi af og til. Ég viðurkenni að ég þurfti að nota alla mína þolinmæði til að reyna að skipuleggja í barnasvaldrinu og -athyglinni, hvar væri nú best að hafa hlutina upp á vinnuaðstöðun að gera, og um leið leika mömmu Karíusar og "Plásturs".........nei nei, Sigurjón Óli veit alveg að gæinn heitir Baktus, en hann segir samt plástur. Börnin 2 eldri hjálpuðu mér eftir fremsta megni og voru búin að búa sér til verslun úr tómum kössun og "seldu" mér allt eldhúsdótið úr kössunum á ganginum. Margrét María tók upp úr kössunum og Sigurjón Óli skráði hversu margir hlutir voru afhentir mér og svo skiptust þau á.

Guðbergur Davíð sefur alveg sæmilega. Hann svaf bara vel til kl.3 fyrstu 2 næturnar en hefur nú lengt tímann til 5, en eftir það er snuðvesen á honum og þarf ég að rugga honum smá af og til svo hann sofni aftur. Sigurjón Óli sefur í pabbaholu og er einhver fyrirferð á honum. Margrét María hefur aðeins verið að vakna á nóttunni, en ekki mikið.
Börnin virðast vera mjög ánægð með að vera komin í skólana sína aftur.
Ég ætla nú að drífa mig í háttinn svo ég fái sem lengstan samfelldan svefn. Langar samt mest að rusla eldhúsinu bara af í kvöld en það væri óskynsamlegt upp á morgundaginn að gera.

Guð blessi lýðinn.

Thursday, January 8, 2009

2009

Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla og öll hin eldgömlu. Sit hér heima hjá mömmu og pabba þar sem ég hef verið síðan á 2.í jólum. Hef samt gert ýmislegt annað en að sitja við tölvuna sko ;o) Er á förum heim til mín í austrinu á laugardaginn og hefst þá venjulegt líf aftur. Ég mun byrja á að pakka upp úr kössum og er ástæðan sú að verið er að endurnýja eldhúsið okkar og verður það langt komið þegar ég kem heim, að minnsta kosti nógu langt býst ég við til að ég geti raðað inn í skápa - ekki bið ég um meira að svo stöddu. Ágúst flaug til USA í dag í vinnuferð og verður þar um sinn.
En nú þarf ég að fara að sofa í hausinn á mér. Guðbergur Davíð svaf illa frá kl.4 seinustu nótt svo ég má ekki við því að vera að slæpast þegar ég gæti verið að sofa.
Blessi ykkur!