Wednesday, November 11, 2009

Sveitablogg

Smá blogg úr sveitinn.
Hér eru allir hressir, enginn veikur og lífið gengur sinn vana gang.

Í gærkvöldi hittumst við fullorðna fólkið hér á Eyjó og borðuðum saman gómsæta súpu sem Ágúst töfraði fram. Við áttum frábæra stund saman, enda frábært fólk á ferð. Skrítið að maður skuli ekki bjóða fólki oftar í mat, eins og þetta er alltaf skemmtilegt. Það verur líklega að flokkast undir framtaksleysi.
Í nótt sváfu svo öll börn undursamlega vel, en Guðbergur Davíð hefur verið að vakna 2-3x á hverri nóttu undanfarnar 2 vikur, sem þýðir mest 3 tíma samfelldur svefn fyrir okkur foreldrana. Sigurjón Óli á það svo til að koma upp í til okkar, það gerist ekki oft þó en var aðeins í kringum veikindin. Maður skyld ætla að við hjónin værum þá sérslega vel úthvíld eftir nóttina í nótt, ó nei ó nei. Þegar ég var búin að sofa í um 1 klst.vaknaði ég við skrjáf í fataskápnum í svefnherberginu og svo aftur og aftur yfir nóttina. Frú mús hafði nefninlega komið sér fyrir þarna inni í notalegheitunum og dúllaði sé við það að éta listaverk Margrétar Maríu, sem nota bene er af ketti! og át frúin líka fína ameríska Target lakið mitt - hvorugt át hún upp til agna en nóg til þess að eftir er tekið. Við reyndum að sofa, enda ekki hægt að vera á músaveiðum um miðja nótt, en réðumst í aðgerðir nú í morgunsárið og náði Ágúst músinni, sem er nú bara sú allra fallegasta sem ég hef séð. Lítil, hvít og dökkbrún með risastór svört augu.
Þannig byrjaði dagurinn í dag góða fólk.

Friday, October 23, 2009

Ekki minnka veikindin...

...nema hjá Margréti, hún er líklega hitalaus í dag þó hún hósti svolítið enn og stefnir hún á að fara í skólann á mánudaginn.
Ég fór með Sigurjón Óla í lungnatékk í gær þar sem tekin var mynd, og hann er ekki með lungnabólgu en það þarf að fylgjast með honum og hann þarf að byrja aftur á pústunum sem hann fékk þegar hann var með lungnabólguna í febrúar.
Guðbergur Davíð er með ljótari hósta en áður og svaf ekki nema 1 klst. úti í vagninum í dag í stað 3-4 klst.
Ég er eldhress en Ágúst er lasanari en áður. Er nú með rúmlega 39° og mikinn höfðuverk og illt í bakinu. Hann sefur líka mjög illa.
Föstudagsknús, Kolbrún

Thursday, October 22, 2009

Og...

.....staðan í dag í er svona:
Ágúst er að skána en enn veikur.
Margét María er enn með hósta og bara lasin en ekki veik.
Sigurjón Óli er kominn með þurran, hvæsandi hósta, líður ekki nógu vel, leggur sig yfir daginn og var með 38° í gær. Ég fer með hann í lungnabólgutékk kl.10:20.
Guðbergur Davíð er farinn að hósta og er enn með smá kvef.
Ég sjálf er eiginlega hvorki veik né lasin en eitthvað er að mér samt. Hálsbólgan og lungnakvefið sem helltist í mig í fyrradag fór eiginlega bara í gær! Kannski vegna þess að nóttina áður náði ég að sofa óvenju lengi í einum dúr, 6-7 klukkutíma held ég bara, þar sem ekkert af börnunum vöknuðu og ég heyrði Margréti ekki hósta nema 1x. Líkami minn hlýtur að hafa glaðst svona yfir hvíldinni að hann sá sér enga ástæðu lengur til að vera að veikjast. Það er margt skrítið í kýrhausnum!

Tuesday, October 20, 2009

Einn bætist í hópinn........

..........og það er ég. Er með þyngsli fyrir brjóstinu og vísi að beinverkjum. Þetta er nú samt allt í lagi ennþá, en ég held ég ætti ekki að fara til vinnu í dag. Ágúst er að hósta svolítið mikið, SÓ líður betur en áður en er að hósta líka sem og MM. Hún var reyndar slappari í gær en hún hefur verið.
Hér er hiti í frostmarki og snjóalegt að sjá. Kannski við fáum nokkur snjókorn í dag, svona til að minna á jólaskapið, en ég er farin að hlakka mikið til jólanna og 66 dagar þar til jóladýrðin skellur á :o)

Monday, October 19, 2009

Meira um lasleika

Snýst ekki líf allra um flensur þessa dagana? Ekki ætla ég að vera eftirbátur í þeirri umræðu.
Staðan er þannig núna að Sigurjón Óli og Ágúst er báðir orðnir veikir. Margrét veiktist semsé á fimmudag ca., Sigurjón Óli á föstudag, Ágúst á laugardag og Davíð uppi og Árni Jökull hinum megin á sunnudag. Ég ætla ekki að leggjast í þessa flensu, enda þarf ég að sinna hinum. Þegar ég hringdi í morgun í leikskólann hans SÓ og tilkynnti hann veikan, sagði kennarinn mér að við værum nr.9 sem tilkynntum veikindi þann morguninn svo því virðist vera að flensurnar séu skollnar á okkur Austlendinga af fullum þunga. Guðbergur Davíð er enn með pínu hor en ekkert veikur. Þannig var það ágætu lesendur!

Thursday, October 15, 2009

Lasleiki

Já, Magrét María fór ekki í skólann í morgunn því hún er með hita. Hún er líka með ljóan hósta en líður annars bara vel. Vonandi er þetta bara eitthvað tilfallandi og að við hin sleppum.
Við skruppum til USA um daginn, yndislegt að hitta alla vinina og kunningjana aftur og að sama skapi gott að eiga "heim" á Íslandi þegar við komum til baka. Þegar við fluttum heim í fyrra vorum við bara að fara að "flytja heim til Íslands" en áttum ekkert sem við gátum kallað "heim". Ég held ég hafi meira að segja læknast af Ameríkuveikinni, þ.e.a.s. að vilja búa í Ameríku. Við keyrðum suður með strákana daginn fyrir brottför út og lögðum ekki af stað fyrr en um kvöldmatarleytið. Keyrðum í einum rykk og stoppuðum bara til að skiptast á að keyra og náðum að vera bara 7 klst.og 15 mínútur á leiðinni. Skrítið að keyra í þögn og myrkri í 7 tíma. Við vildum ekki hafa útvarpið á svo strákarnir myndu örugglega sofið.
Við vorum svo blessuð að geta komið Margréti Maríu fyrir hjá Unnari og Öldu uppi og 1 helgina var hún hjá Álfheiði og Bjarti á móti. Hún fór því í skólann og allt gekk sinn vanagang, fyrir utan að við ætluðum að hitta hana á haustmóti kirkjunnar okkar í Vatnaskógi þegar við komum heim en hún varð veðuteppt með Öldu og Unnar á Akureyri! Það voru því liðnar næstum 2 vikur frá því við höfðum séð hana seinast svo það urðu heldur betur fagnaðarfundir þegar við hittumst aftur. Sigurjón Óli var í dekri í sveitinni hjá afa og ömmu í Forsæti og sömuleiðis hjá afa og ömmu á Selfossi. Það fór afar vel um hann enda mikið ríkidæmi hjá honum að eiga 2 sett af öfum og ömmum. Takk öll sömul fyrir að redda okkur og nenna að gera þetta. KNÚS!!!!!!
Annars gengur bara allt sinn vanagang, tréin hér í sveitinni eru á sínum stað, sem og rokið og sólin, svo það er bara allt við það sama. Bless í bili.

Thursday, September 17, 2009

Annir

Það er brjálað að gera hjá mér þessa dagana. Kennslan er farin af stað og tekur mjög langan tíma að undirbúa hana fyrir veturinn þannig að vel sé. Ágúst mætir eldsnemma í vinnuna 3 morgna í röð svo ég komist í mína vinnu eftir hádegið og erum við engan veginn að anna öllu á meðan þetta skipulag er að komast á koppinn. Við erum í góðu samstarfi við Öldu og Unnar uppi með að skutla og sækja, frábært að geta hjálpast svona að!
Ég kenni 5 unglingum 2x í viku á þverflatu í Tónlistarskólanum á Egilsstöðum og svo er ég með 3 hópa í Forskólakennslu, 1.og 2.bekk, 1x í viku. Morgnarnir fara í undirbúning kennslunnar og þann tíma verð ég líka að nota til að æfa mig á píanóið og þverflauutuna og reyna að halda heimilinu í horfinu. Ég kenni líka 6 ára stráknum á efri hæðinni á blokkflautu 2x í viku.
Ég er svo hamingjusöm þessa dagana, finnst svo gott að vera farin að kenna, þykir ósköp vænt um þetta fólk sem ég er að vinna með og finn að ég þarf að kenna til að þrífast. Ég hef ekki kennt í 4 ár svo þetta eru auðvita viðbrigði, en góð viðbrigði.
Margrét er al sæl í skólanum sínum og fer oft að leika við vinkonur eftir skóla, ýmist hér eða heima hjá þeim. Sigurjón Óli er miklu glaðari þennan veturinn í leikskólanum en í fyrra vetur. Hann er nú áfjáður í að læra að lesa og spila á blokkflautu. Guðbergur Davíð er veikur, með hita og kvef. Við erum reyndar öll með kvef, en það verður farið fyrr en varir.
En nú bara verð ég að halda áfram að skipuleggja kennsluna, það erskoh brjálað að gera hjá mér skoh eins og ég sagði skoh! en ég verð að standa við stóru orðin og blogga aðeins þó ekki fari mikið fyrir bröndurum eða skopsögum af fjölskyldumeðlimum eins og svo oft áður. Lifið heil! Vikan er hálfnuð!

Tuesday, August 25, 2009

Ég er svaka spennt fyrir morgundeginum því þá byrja ég að vinna. Hef ekki unnið utan heimilisins í rúm 4 ár svo það er pínu átak að hafa sig í þetta. En ég hlakka til að komast út úr húsi og vinna við það sem er mér kært, tónlist. Ég mun kenna á þverflautu við Tónlistarskólann á Egilsstöðum sem og vera með forskóla, en það er tónlistarundirbúningsnám fyrir 6 og 7 ára krakka. Það er ekki vitað enn hversu mörgum foskólahópum ég mun kenna, en það verður komið í ljós um miðjan mánuðinn. Læt ykkur vita á morgun hvernig hefur gengið!

Ýmsar myndir frá sumrinu.

Guðbergur Davíð keyrði bílinn sinn fram af hárri brún úr eldhúsinu inn í þvottahús og fékk í staðinn væna vör!


Gómsæt rúlluterta sem ég skreytti.


Gítar sem Steinunn Perla 14 ára gerði.


Og þetta er Steinunn Perla systurdóttir mín. Hún hjálpaði mér með börn og bú í sumar og er alveg æðisleg stelpa!
Posted by Picasa

Thursday, August 20, 2009

Mætt til leiks á ný!

Ég veit að einhverjir munu gleðjast í hjarta sínu yfir því að ég skuli vera farin að blogga aftur. Ég ætla virkilega að reyna að vera dugleg í vetur, enda að byrja að vinna úti svo líklega verður lífið eitthvað meira frásagnarvert en seinasta vetur, þó hver dagur sé auðvita fullur af ævintýrum og kraftaverk út af fyrir sig fyrir utan að hann er Guðs gjöf til okkar.

Þessar myndir eru teknar í seinustu viku, hér er mamma Önnu Lísu frænku í heimsókn í Forsæti.


Margrét María er orðin stór stelpa og fer í 2.bekk í haust.


Sigurjón Óli er BARA sætur og fer á seinasta árið sitt í leikskólanum í vetur.


Ágúst minn og Guðbergur Davíð eru krútt.


Risaknús á alla, ég verð að fara að sinna GD, hann orgar og orgar!!!! Bæ kjútípæs!
Posted by Picasa

Sunday, May 31, 2009

Fleiri myndir

Guðbergur Davíð borðar sitt fyrsta snakk á meðan hann horfir á sína fyrstu júróvisjónkeppni.


Bjargar sér með banana.


Klípur systur sína.


Margrét María hjálpar til með þvottinn.
Posted by Picasa

Thursday, May 28, 2009

Nokkrar myndir


Með afa á leið í flugvélina heim með mömmu.

Í flugvéliinni.

Að tala við pabba í "ekki tilbúið enn"eldhúsinu.

Blautur og sæll eftir að hafa leikið sér við baðkarið á meðan Margrét María og Sigurjón Óli voru í baði.
Posted by Picasa

Monday, May 25, 2009

Við söknum Ameríku!

Hér eru nokkrar myndir af vinum okkar haldandi á Guðbergi Davíð pínu litlum.
Marianne Topar, kona Frank. Æðisleg manneskja!
Posted by Picasa
Karen Anderson er kona mannsins sem stofnaði skólann sem Ágúst var í úti.
 

Larry Klein var í kirkjunni okkar og alltaf að koma með gjafir.
Posted by Picasa
 Frank Topar var í kirkjunni okkar.  Frábær náungi.

Darleen var í kirkjunni okkar, yndisleg amma.


Posted by Picasa
Anna Lísa yndislega, yndislega yndislega frænka mín!

Annie Jo mamma Önnu Lísu, í miklu uppáhaldi!!

June frænka þeirra, býr til dásamlegan mat!
Posted by Picasa
Sharon, yndisleg vinkona okkar, vann í skólanum hans Ágústar og var líka nemandi þar.

Kendra, starfsamaður skólans hans Ágústar, yndisleg kona!
 

Elsku Margrete Messerer, gamla konan sem bjó á móti okkur.

Systir Gabbo, vinar Margrétar Maríu.  Þau bjuggu í húsinu okkar.  
Posted by Picasa

Saturday, April 11, 2009

Ja hérna!

Nú er ég alveg gapandi hissa. Ég bara trúi því varla að það séu 2 mánuðir síðan í bloggaði seinast. Hvernig getur tíminn liðið svona hratt?!
Ég verð að vona að ég sé ekki að skrifa fyrir tómum augum þó langt sé um liðið.
Við erum núna stödd á Selfossi, gistum hjá mömmu og pabba og höfum það ljómandi gott. Ágúst er að vinna og ég að djamma með börnunum og snúast í kringum sjálfa mig og aðra. Hef líka aðeins náð að grípa í saumadótið mitt, en ég hef ekki saumað í ca.ár.
Mamma lenti inni á spítala en er komin heim núna og mikið ósköp notalegt að vera búin að fá hana heim.
Við höfum aðeins verið að fara í sund og heimsækja vini. Svo er það yndislegir páskar á morgun með tilheyrandi kirkjusókn og páskaeggjaáti, áð ógleymdu steikaráti hjá mömmu og pabba. Svo eru það 2 fermingar, sem ég hlakka óskaplega mikið til.
En þetta var nú allt og sumt eftir 2 mánuði, greinilega viðvarandi ritstífla í gangi.
Gleðilega páska!!!!!

Saturday, February 14, 2009

Lungnabólga

Það er ekki hægt að segja að þessir fyrstu mánuðir ársins færi okkur heilsu, en sem kunnugt er lá Ágúst í lungnabólgu í nokkra daga. Margrét tók svo við með blöðrubólgu, Guðbergur Davíð er fullur af kvefi og Sigurjón Óli er kominn með lungnabólgu. Hann er ósköp duglegur þessi elska, sefur 3 tíma á dag en líður þokkalega þess á milli. Við þekkjum konu á Egilsstöðum sem kom í dag og lagði heita og kalda bakstra á brjóstið á honum og vonandi flýtir það bara fyrir batanum. Hann er á sýklalyfjum svo vonandi bara gengur þetta eðlilega yfir og hefur ekki nein eftirköst í för með sér.
Annars gengur allt sinn vanagang hér í sveitinni. Á sunnudögum erum við með samkomur hér í skólahúsinu á Eyjólfsstöðum, eða inni í stofu hjá okkur Ágústi eftir því sem hentar, en á morgun ætlum við að hittast á Reyðarfirði hjá fjölskyldu sem er tiltölulega ný farin að koma til okkar á samkomur.
Í kvöld ætlum við að horfa á júróvisjón og fengum til þess lánað sjónvarp Öldu og Unnars. Við ætlum að fá okkur ís, poppa og drekka Egils ananasdjús með. Ég hef ekki smakkað slíkt í mörg ár, amminamm.
En þetta var svona það helsta úr sveitinni í þetta skiptið.

Tuesday, February 3, 2009

Sigurjón Óli sat semsé við sér borð, enda líst honum líklega betur á pakka heldur en stelpur.


Svo voru gjafirnar teknar upp af miklum móð!


Afmælisdúkurinn sem pabbi keypti í Ameríku í pnsjóinu sem pabbi keypti í Mexico.


Þessi mynd er svo tekin á sjálfan afmælisdaginn úr litlu afmælisveislunni.
Posted by Picasa

7 ára bekkjarafæli Margrétar Maríu

Hluti af bekkjarsystrunum mættar og Davíð, sem býr uppi, líka :o) Sigurjóni Óla leist illa á að sitja í þessum stelpuskara þrátt fyrir að vinur hans sæti þar.

Margrét og 2 bekkjarsystur. Hún tók ekki annað í mál en að vera í kjólnum sem pabbi hennar fékk handa henni í Mexico hér um árið.

Kökurgerðarkonan.

Og kökurnar tilbúnar - 4 handtöskur. Steæpurnar komu allar með handtöskur og fóru heim með gotterí og dót í þeim.
Posted by Picasa