Það er gott að halda Þorláksmessu loksins á Íslandi þar sem allir í kringum mann eru í sama gír og skilja út á hvað málið gengur.
Nóttin var fín, Guðbergur Davíð svaf best þessa nótt af þessum 3 sem liðnar eru. Ég svaf a.m.k. í 7 klukkutíma í einni lotu og var bara þrælþreytt þegar ég vaknaði, greinilega mikil vinna að sofa svona lengi í einu hehe. Ég og börnin ætlum svo að færa okkur inn í okkar hús næstu nótt því mig langar ekki að fara að sofa kl.21 í kvöld heldur aðeins seinna, en börnin verða að vera að mestu í sínum svefnrútínum svo allt gangi sem best fyrir sig. Ég ætla meira að segja að fá mér súkkulaðikaffibolla í dag með rjóma og bismark til að ég haldist hress fram að miðnætti.
Lifið heil!
Tuesday, December 23, 2008
Sunday, December 21, 2008
Svefn
Þessa dagana erum við að taka á svefni Guðbergs Davíðs og er hann að læra að súpa ekki hjá mömmslunni sinni á nóttunni. Nú eru 2 nætur búnar og hann er frekar reiður og pirraður yfir þessu ástandi á tímum ljóss og friðar. Nóttin í nótt var þó skárri en fyrri nóttin svo þetta hlýtur að koma. Ég og börnin sofum í skólahúsinu og höfum það agalega huggulegt. Þau búa sig á kvöldin í náttfötin og svo útifötin utan yfir og setja á sig bakpoka með börnunum sínum í og skottast með mér yfir. Þeim finnst þetta aaaalgjört æði! Mér finnst þetta gaman líka. Ég náði meira að segja að sofa svolítið í nótt og held ég að ég hafi sofið frá 22:15 - 5:30 og hefur það ekki gerst í ca.ár. Ég er að uppgötva þessa dagana hvað ég er í raun búin að vera svefnlaus lengi. Ekkert skrítið að mér finnist ég ekkert vita, geta, muna eða skilja. Vonandi kemur þetta allt saman eftir því sem börnin stækka.
Í dag er allt á kafi í snjó við ætlum að halda áfram að undirbúa heimilið fyrir jólin.
Það var nú eitthvað fleira sem ég ætlaði að skrifa en man það bara ekki, enda ný búin að tala um minnisleysi......eða var það ekki annars?................

Friday, December 19, 2008
Ýmislegt
Í gær fékk ég þær dapurlegu fréttir að fullorðin frænka mín frá Vestmannaeyjum væri látin. Hún hefur hringt í mig fyrir jólin síðan ég flutti til USA og hringdi einmitt nú í byrjun desember. Mér þótti alltaf svo vænt um að heyra í henni og tilhugsunin um að hún sé farin er tómleg.
Annað er það að frétta að Margrét María fór á 1. skólajólaballið sitt í morgun og urðu hún og Árni Jökull vinur hennar í næsta húsi samferða. Þau voru bæði í sínu fínasta pússi og fékk ég þá tilfinningu að þau væru að fara á PROM ball :o) Vonandi næst mynd af þeim saman.
Sigurjón Óli hefur verið með hita í nokkra daga en rétt náði að verða hress fyrir leikskóla jólaballið sem var á miðvikudaginn. Hann skemmti sér vel.
Guðbergur Davíð sefur illa á nóttunni. Við Ágúst reynum að skiptast á að sofa inni hjá Sigurjóni Óla svo við séum ekki bæði svefnlaus. GD er með vökva í eyrunum og líklega er undirþrýstingur að valda þessu svefn vandamáli hjá honum, en ég þarf að komast betur að hvort svo sé.
Nýja eldhúsið okkar verður sett upp í byrjun janúar. Við verðum reyndar hvorugt heima og ætlum við því núna um helgina að pakka niður öllu úr eldhúsinu nema því allra nauðsynlegasta, sem verður pakkað niður 2.í jólum rétt áður en Ágúst leggur af stað suður. Hann fer semsé keyrandi suður þann dag og ég flýg með unganan snemma um morguninn.
Meira er ekki í fréttum að sinni, ég minni ykkur á að kíkja reglulega hér inn. Veriði sæl.

Sunday, December 14, 2008
Friday, December 12, 2008
Ekkert að frétta af engu
Það er hundleiðinlegt að lesa bloggið mitt þessa dagana því ég hef bara ekkert að segja. Er nánast ekki búin að gera neitt fyrir jólin og er bara að hamast við að taka upp úr seinustu kössunum. Annað var það nú ekki í þetta skiptið.
Saturday, November 29, 2008
Snjór
Hér er allt hvítt. Það snjóar af og til, þögnin er alls ráðandi fyrir utan suðið í tölvunni og hláturinn hans Unnars okkar uppi. Jólaskreytt húsið hjá Álfheiði og Bjarti gleður augað og iljar jólahjartanu. Börnin eru komin í háttinn og sofnuð, Ágúst er úti í vélageymslu að aðstoða Guðberg bróður sinn við að gera við bílinn okkar. Frábært að fá hann hingað til okkar yfir helgina. Á morgun ætlum við svo að taka fjölskyldumyndir og borða þakkargjörðarmáltið með vinum okkar hér.
Í dag fórum við í bæinn til að sjá jólasveinana og sjá þegar kveikt var á jólatrénu. Það var gaman fyrir utan hvað mér finnst leiðinlegt að heyra jólasveinana blóta. Finnst það bara algjör óþarfi. Krakkarnir fengu voða myndarlega nammipoka hjá körlunum og ég fann akkúrat réttu aðventukertin í Kaupfélaginu. Baka svo aðventukransinn á morgun og þá ætlum við líka að sækja jóladótið okkar sem náðist ekki að finna í dag því við vorum svo lengi í bænum.
Ég hringdi áðan til míns elskulega Jú Ess end Ei og ætlaði að heyra í henni Connie minni, en hún var ekki heima svo ég átti gott spjall við Joe manninn hennar, en hann er minn sérlegi pönnukökuvinur þar sem við stóðum hlið við hlið og kirkjunni okkar úti og pökuðum pönnukökur í gríð og erg - ég íslenskar og hann amerískar. Mikið er skrítið að finnast maður eiga aðra fjölskyldu í landi langt í burtu. En svona er þetta bara. Það er betra að hafa elskað og hverfa á braut en hafa aldrei elskað.
En nú er mér um það bil allri að verða lokið þar sem ég svaf lítið seinustu nótt því Guðbergur Davíð svaf illa. Hann er kominn með kvef svo ég býst við að hann sofi ekki vel í nótt heldur. Ágúst vildi nú endilega seinustu nótt að ég svæfi inni hjá Sigurjóni Óla svo ég gæti hvílt mig betur, en ég þáði það ekki. Sjáum hvað setur í nótt. Segjum þetta gott í bili. Aðventuknús á alla.

Thursday, November 20, 2008
Já já
Það er allt gott að frétta úr sveitinni. Þar sem ég er mjög upptekin af því að hafa snjó í kringum mig þá verð ég að segja ykkur það að í gærkvöldi snjóaði þessum líka fallega jólasnjó og hlakkaði ég til í alla nótt að kíkja út um gluggann nú í morgunsárið og var það ægi fagurt á að líta. Snjórinn er svo jólalagahlustunarhvetjandi.
Guðbergur Davíð er mjög upptekinn af tölvunni þar sem hann situr hér á gólfinu við hliðina á mér. Hann togar í allar þær snúrur sem hann finnur og tókst að draga þungan A4 blaðabunka undan tölvuskápnum og út á gólf. Ég hugsa að hann verði farinn að skríða fyrir jól. Hann verður 7 mánaða eftir 3 daga.
Sigurjón Óli er að læra fullt af lögum í leikskólanum. Ég hef aldrei heyrt hann syngja jafn mikið og undanfarið.
Nú er ný eldhúsinnrétting á teikniborðinu. Þetta er allt á byrjunarstigi en komið af stað og verður spennandi að sjá hvernig þetta endar.
Ekkert á dagskrá í dag annað en að reyna að koma kössum í lóg og vera í mömmu- og húsmóðurleik.
Tjá tjá for náv!

Friday, November 14, 2008
2 tilkynningar...
Bara að tilkynna að gamla góða símanúmerið okkar hefur nú aftur "tekið til starfa" eftir 3 ára hlé................og nú sit ég við símann og bíð eftir skemmtilegum símtölum.................:o)
Á morgun er ég að fara á stelpusnatt með Álfheiði, bara við tvær að skreppa út í bæ, kíkja í Blómaval og á eldhúsið hjá systur hennar, en til stendur að gera eitthvað í eldhúsmálum hér í gamla húsinu......kominn tími til eftir 50 ár:o)
Minni svo á að ég bíð við símann..............ekki hringja eftir kl.22 samt því þá er ég vís til að vera agalega geðvond.........

Thursday, November 13, 2008
Það er nefninlega það!
Ég sé að það er farið að slá eitthvað útí fyrir mér! Farin að posta sömu myndirnar oftar en einu sinni. En hvað um það.
Í morgun spurði ég Sigurjón Óla hvort hann vildi fara í heimsókn í dag til vinar síns og var samtalið á þessa leið:
K:Viltu fara í heimsókn til Dags Mána í dag?
S:Mamma, hann heitir ekki Dags Mána, hann heitir Dagur Máni!
Blessuð börnin!
Ég byrjaði í dag að hlusta á jólaútvarið frá Minneapolis......gat bara ekki lengur "ekki hlustað" á jólatónlist. Eins mikið og ég hef hlakkað til að eiga jól á Íslandi og finnst það æðislegt, þá sakna ég amerísku jólanna alveg voðalega!
En smá upplýsingar fyrir afana og ömmurnar: Hér er sæt snjóföl yfir öllu og afar kyrrt og hljótt og hiti rétt yfir frostmarki. Ágúst fór að vinna á Egilsstöðum í morgun og börnin fóru í skólana sína. Margrét fer svo í fimleika beint úr skólanum og Sigurjón Óli verður sóttur af mömmu "Dagur Máni". Ég er að komast niður úr hrúgunum á ganginum og ætla mér að fara langleiðina í dag með að koma ganginum í lag í ljósi þess að ég verð eldri-barna-laus þar til kl.16. Guðbergur Davíð er að sigrast á augnsýkingunni, lifi soðið vatn! Hann náði svo að krækja sér í auka mömmusopa í nótt þar sem ég fór á fætur klukkutíma of snemma og skildi ekkert í að grannarnir mínir góðu væru ekki komnir á fætur, allt slökkt á þeim bænum!
En þá er mér ekki lengur til setunnar boðið. Ætla að byrja á ganginum........

Wednesday, November 12, 2008
Monday, November 10, 2008
Staðan í dag
Sigurjón Óli er duglegastur af öllum að klæða sig á morgnana og er hæst ánægður með að mamma hans sofi með honum í herberginu hans.
Margrét María er dugleg að bora fingrum sínum í vit litla bróður síns þannig að nú er hann kominn með sýkingu í bæði augun og sér varla út fyrir grefti.
Guðbergur Davíð svaf ekki vel í nótt og stóð Ágúst þá vakt.
Ágúst verður á fartinni í dag að sækja á flugvöllinn, vera í íþróttahúsinu með Sigurjóni Óla í boði leikskólans og að sækja börnin úr leikskóla og svo fimleikum.
Ég er búin að sofa inni hjá Sigurjóni mínum Óla nú í 2 vikur og gerði heiðarlega tilraun í fyrrinótt til að sofa í sama herbergi og Ágúst og Guðbergur Davíð. Svaf ég vel fyrstu 5 tímana eða þar til GD vaknaði, en eftir það önduðu þeir feðgar allt of hátt og hrutu, auk þess sem regnið buldi full hátt í glugganum sem verið er að gera við. Ég er því aftur flutt inn til Sigurjóns Óla.
Já það er vandlifað í þessari veröld!

Saturday, November 8, 2008
Friday, November 7, 2008
Rakst á nokkrar eldri myndir..............
Margrét mín að róla í Vallenginu

MM á Þingvöllum

Fjölskyldan á Þingvöllum, Sigurjón Óli lætur sér líða vel í bumbunni

Rúsínan í pylsuendanum......við Ágúst að borða okkar fyrstu búskaparmáltið í Rofabænum. Árið er 1995 og maturinn er pakkapasta ásamt Coke og Fanta ! Ágúst smíðaði eldhúsborðið og ég fékk gardínurnar á spottprís í KÁ á Selfossi :o) Yndisleg minning!

Thursday, November 6, 2008
Tuesday, November 4, 2008
Fleiri myndir
Sunday, November 2, 2008
Wednesday, October 29, 2008
Merkilegur dagur!!!
Í dag eru 15 ár liðin síðan við Ágúst byrjuðum okkar ævigöngu saman. Við erum þá búin að vera saman nærri helming ævi okkar :o) Á morgun ætlum við að hittast á Egilsstöðum í hádegismat og halda upp á þetta. Þessi dagur er okkur alltaf kær ekki síður en brúðkaupsdagurinn. Við eigum að vera dugleg að halda upp á daga sem teljast merkilegir í lífum okkar einhverra hluta vegna því þannig breytum við hversdögunum í hátíðardaga og ekki veitir af þeim nú á þessum síðustu og verstu!
Hér eru tveir af þremur ávöxtum ástar okkar að "elda" kvöldmatinn kvöld eitt í septemberbyrjun.....

Í kvöld koma í mat til okkar kanadísku hjónin sem búið hafa hér á Eyj.í tæpa 3 mánuði. Þau munu fara frá okkur eftir helgina næstu til að fara aftur heim til Kanada og verður þeirra sárt saknað sem og drengjanna þeirra tveggja, en þar er mikið prýðisfólk á ferð.

Monday, October 27, 2008
Ekki kreppuvæn uppákoma
Þessi ungi maður hefur það gott. Hjá honum ríkir engin kreppa og lítur ekki út fyrir að mjólkurbúðin hans muni loka í bráð. Hann veit heldur ekkert um ævintýrið sem fjölskylda hans lenti í í morgun, en þannig var að húsmóðirin var á keyrslu frá Eyjólfsstöðum með 6 börn í bílnum á aldrinum 4-13 ára. Þegar hún gerir sig líklega til að beygja inn á Tjarnarbraut nokkra heyrast skruðningar undir vélarhlífi bifreiðarinnar sem hægir á sér og skartar öllum þeim fegurstu bilanaljósum sem hún býr yfir í mælaborðinu auk megnrar olíulyktar. Frúin nær nú að keyra út í kant og drepur á bílnum, hringir í bónda sinn og biður hann um að fá lánaðan bíl undir eins því dóttir hans sé að missa af rútunni út í Eiða. Hann kemur um hæl og hnakka og smalar frúin 3 stelpum inn í bílinn hjá bóndanum sem reykspólar af stað (eða ekki) og nær að keyra í veg fyrir rútuna. Hann kemur svo til baka og keyrir leikskóladrengina og frúna í leikskólann og brunar svo með frúna í sund og seinasta barnið í annan leikskóla. Ekki var hægt að sleppa því að fara í sund þar sem frúin ætlar að verða spikk og span fyrir jól og engin ástæða til að láta dauðan fararskjótann setja prógramm dagsins upp í loft! Þegar svona uppákomur eiga sér stað er gott að búa í samfélagi þar sem allir hjálpast að. Bíllinn kemst að í viðgerð einhvern næstu daga og skírist þá hvort hann er eitthvað frekar til í tuskið eða hvort þetta verða hans endalok. Frúin er því mest fegin að ekki hafi kviknað í blessaðri bifreiðinni og verður hún að viðurkenna að á broti úr sekúndu flaug í gegnum huga hennar "björgunaráætlun úr 7 manna bíl. Lifið heil!
Sunday, October 26, 2008
Saturday, October 25, 2008
Fyrsta myndasyrpan er tileinkuð Sigurjóni Óla, duglegasta strák í heimi! (Klikkið á myndirnar til að stækka þær).
Hann var nú heldur en ekki ánægður að fá alvöru hamar í afmælisgjöf frá Þórbergi frænda.

Hér eru þeir frændur, tilbúnir í slaginn

Og 1.leikskóladagurinn, sem var reyndar í byrjun sept.

Hann er liðtækur við heimilisstörfin drengurinn.

Annars er það að frétta að Guðbergur Davið er nú að læra að hann fær ekki að súpa hjá mömmu sinni á nóttunni, og gengur það vel. Hann svaf frá 21:30 í gærkvöldi til kl.6 í morgun án þess að súpa og þurfti Ágúst ekkert að hafa svo mikið fyrir honum. Ég sef nefninlega inni hjá Sigurjón Óla á meðan litlinn er að læra þetta. Margrét María er kvefuð. Sigurjón Óli er hálf kvefaður og er að steypast út í útbrotum um munninn. Ég er ó-frísk, er sko að jafna mig eftir kinnholubólgu og hálfs árs skort á svefni (haha, þarna lék ég á ykkur!) og Ágúst er frískur. Best að fara að sofa ............ZZZZZZZZZZzzzzzzzzzzzz

Friday, October 24, 2008
Þá er ég komin á nýtt bloggsvæði...
Subscribe to:
Posts (Atom)