Wednesday, October 29, 2008

Merkilegur dagur!!!

Í dag eru 15 ár liðin síðan við Ágúst byrjuðum okkar ævigöngu saman. Við erum þá búin að vera saman nærri helming ævi okkar :o) Á morgun ætlum við að hittast á Egilsstöðum í hádegismat og halda upp á þetta. Þessi dagur er okkur alltaf kær ekki síður en brúðkaupsdagurinn. Við eigum að vera dugleg að halda upp á daga sem teljast merkilegir í lífum okkar einhverra hluta vegna því þannig breytum við hversdögunum í hátíðardaga og ekki veitir af þeim nú á þessum síðustu og verstu!

Hér eru tveir af þremur ávöxtum ástar okkar að "elda" kvöldmatinn kvöld eitt í septemberbyrjun.....


Í kvöld koma í mat til okkar kanadísku hjónin sem búið hafa hér á Eyj.í tæpa 3 mánuði. Þau munu fara frá okkur eftir helgina næstu til að fara aftur heim til Kanada og verður þeirra sárt saknað sem og drengjanna þeirra tveggja, en þar er mikið prýðisfólk á ferð.

3 comments:

Anonymous said...

Sæl elskan mín. Mikið er gaman að lesa um ævintýrin ykkar fyrir austan... er búin að lesa alveg niður síðuna:)
Ég verð fastagestur hérna inni og hlakka til að lesa meira.
Mikið er litli prinsinn orðin stór... nú er ég forvitni.. getur maður fengið mál???;) Er að fara með Reynir í 5. mánaða skoðun á morgun (1/2 mánuði of seint) og hlakka til að vita málin;)
Já.... ég væri mikið til í að hitta ykkur kæru vinir.... en ég ætla sko að leggja það til að við förum austur í ferðalag næsta sumar á húsbílnum góða;)
Knús og kossar... og góðir straumar!!!

Anonymous said...

Ég var bara ekkert að fatta að ég þyrfti að setja nafnið mitt með..hehe.... smá brjóstaþoka:):):)

En þetta er ég...
Sæborg:)

Anonymous said...

hæ gaman að sjá þig hér