Sigurjón Óli er duglegastur af öllum að klæða sig á morgnana og er hæst ánægður með að mamma hans sofi með honum í herberginu hans.
Margrét María er dugleg að bora fingrum sínum í vit litla bróður síns þannig að nú er hann kominn með sýkingu í bæði augun og sér varla út fyrir grefti.
Guðbergur Davíð svaf ekki vel í nótt og stóð Ágúst þá vakt.
Ágúst verður á fartinni í dag að sækja á flugvöllinn, vera í íþróttahúsinu með Sigurjóni Óla í boði leikskólans og að sækja börnin úr leikskóla og svo fimleikum.
Ég er búin að sofa inni hjá Sigurjóni mínum Óla nú í 2 vikur og gerði heiðarlega tilraun í fyrrinótt til að sofa í sama herbergi og Ágúst og Guðbergur Davíð. Svaf ég vel fyrstu 5 tímana eða þar til GD vaknaði, en eftir það önduðu þeir feðgar allt of hátt og hrutu, auk þess sem regnið buldi full hátt í glugganum sem verið er að gera við. Ég er því aftur flutt inn til Sigurjóns Óla.
Já það er vandlifað í þessari veröld!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Ágúst slapp nú við eitthvað af fartinni ...
Já þetta varð allt ljúfara en til stóð í fyrstu. Gott að sjá aftur ljós hjá grannkonunni :o)
Post a Comment