Sunday, December 21, 2008

Svefn

Þessa dagana erum við að taka á svefni Guðbergs Davíðs og er hann að læra að súpa ekki hjá mömmslunni sinni á nóttunni. Nú eru 2 nætur búnar og hann er frekar reiður og pirraður yfir þessu ástandi á tímum ljóss og friðar. Nóttin í nótt var þó skárri en fyrri nóttin svo þetta hlýtur að koma. Ég og börnin sofum í skólahúsinu og höfum það agalega huggulegt. Þau búa sig á kvöldin í náttfötin og svo útifötin utan yfir og setja á sig bakpoka með börnunum sínum í og skottast með mér yfir. Þeim finnst þetta aaaalgjört æði! Mér finnst þetta gaman líka. Ég náði meira að segja að sofa svolítið í nótt og held ég að ég hafi sofið frá 22:15 - 5:30 og hefur það ekki gerst í ca.ár. Ég er að uppgötva þessa dagana hvað ég er í raun búin að vera svefnlaus lengi. Ekkert skrítið að mér finnist ég ekkert vita, geta, muna eða skilja. Vonandi kemur þetta allt saman eftir því sem börnin stækka.
Í dag er allt á kafi í snjó við ætlum að halda áfram að undirbúa heimilið fyrir jólin.
Það var nú eitthvað fleira sem ég ætlaði að skrifa en man það bara ekki, enda ný búin að tala um minnisleysi......eða var það ekki annars?................

4 comments:

Anonymous said...

Sæl Kolbrún mín
Var að sjá þetta blogg í fyrsta skipti núna og á eftir að lesa mikið. Renndi þó yfir myndirnar og dáðist að ykkur fallegu fjölskyldunni. Gangi ykkur vel í "næturvinnunni" með GD.
Kveðja af Grandaveginum

Unknown said...

Sæl og blessuð Guðrún mín, ég hef einmitt verið að hugsa til þín í dag sérstaklega. Þú getur lesið bloggið á aðfangadag þegar þú verður búin að "öllu" fyrir jólin :o)

Anonymous said...

Velkomin á nýjan vettfang. Nú er ég forvitin sofið í skólahúsinu?
Vildi bara láta vita að ég fylgist en með ykkur.
KNús og kossar frá hawaii.

Unknown said...

Það var rekinn Biblíuskóli hér í mörg ár og er það húsnæði notað fyrir Bed&Breakfast og er mest í notkun á sumrin. Það er semsé skólahúsið.
Takk fyrir innlitið hér kæra frænka.