Ekki hér í sveitinni nei, heldur í Minneapolis. Það hefur ekki verið svona kalt hjá þeim í yfir 5 ár, en við erum að tala um 35 stiga frost með vindi og allt niður í 46 gráður aðeins norðar. Mig dauðlangar að upplifa þetta en er á sama tíma fegin -12 stigunum hér, án vinds.
Ég er á fullu að gera eldhúsið klárt áður en Ágúst kemur úr Ameríkuvinnuferðinni. Byrjaði í dag að raða inn í skápa og gekk það vel þrátt fyrir 2 talandi börn og eitt skælandi af og til. Ég viðurkenni að ég þurfti að nota alla mína þolinmæði til að reyna að skipuleggja í barnasvaldrinu og -athyglinni, hvar væri nú best að hafa hlutina upp á vinnuaðstöðun að gera, og um leið leika mömmu Karíusar og "Plásturs".........nei nei, Sigurjón Óli veit alveg að gæinn heitir Baktus, en hann segir samt plástur. Börnin 2 eldri hjálpuðu mér eftir fremsta megni og voru búin að búa sér til verslun úr tómum kössun og "seldu" mér allt eldhúsdótið úr kössunum á ganginum. Margrét María tók upp úr kössunum og Sigurjón Óli skráði hversu margir hlutir voru afhentir mér og svo skiptust þau á.
Guðbergur Davíð sefur alveg sæmilega. Hann svaf bara vel til kl.3 fyrstu 2 næturnar en hefur nú lengt tímann til 5, en eftir það er snuðvesen á honum og þarf ég að rugga honum smá af og til svo hann sofni aftur. Sigurjón Óli sefur í pabbaholu og er einhver fyrirferð á honum. Margrét María hefur aðeins verið að vakna á nóttunni, en ekki mikið.
Börnin virðast vera mjög ánægð með að vera komin í skólana sína aftur.
Ég ætla nú að drífa mig í háttinn svo ég fái sem lengstan samfelldan svefn. Langar samt mest að rusla eldhúsinu bara af í kvöld en það væri óskynsamlegt upp á morgundaginn að gera.
Guð blessi lýðinn.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Takk kærlega fyrir okkur, ekkert smá gaman að fá þessar bækur...þú átt eftir að slefa þegar þú sérð súkkulaði uppskriftabókina sem Ágúst keypti;-)
En langar svo mikið að sjá myndir af nýja eldhúsinu;-)
Kveðja Iðunn
Takk fyrir jólakortið, alveg æðisleg myndin af ykkur. Gaman verður að fylgjast með héðan, og það verður gaman að sjá myndir af eldhúsinu, ég er svo spennt.
Iðunn, þú verður að koma með uppskriftabókina í heimsókn til mín svo við getum brallað eitthvað súkkulaðigott saman :o)
Maríanna, takk fyrir hólið, enda falleg ætt sem við tilheyrum :o) Ég ætla að setja inn myndir af eldhúsinu þegar við erum búin að mála, bara svo munurinn verði algjörlega afgerandi. Njóttu sólarinnar mín kæra.
Hæ Kolbrún - langt síðan ég hef kíkt á bloggið þitt. Ætla að kíkja reglulega hér eftir og fylgjast með eldhúsmyndum og fleiru. Svo manstu að láta vita af þér næst þegar þú ert á ferð svo við fáum að hitta þig :)
Hahahah geri það pott þétt;-)
Kveðja Iðunn
Post a Comment