Saturday, February 14, 2009

Lungnabólga

Það er ekki hægt að segja að þessir fyrstu mánuðir ársins færi okkur heilsu, en sem kunnugt er lá Ágúst í lungnabólgu í nokkra daga. Margrét tók svo við með blöðrubólgu, Guðbergur Davíð er fullur af kvefi og Sigurjón Óli er kominn með lungnabólgu. Hann er ósköp duglegur þessi elska, sefur 3 tíma á dag en líður þokkalega þess á milli. Við þekkjum konu á Egilsstöðum sem kom í dag og lagði heita og kalda bakstra á brjóstið á honum og vonandi flýtir það bara fyrir batanum. Hann er á sýklalyfjum svo vonandi bara gengur þetta eðlilega yfir og hefur ekki nein eftirköst í för með sér.
Annars gengur allt sinn vanagang hér í sveitinni. Á sunnudögum erum við með samkomur hér í skólahúsinu á Eyjólfsstöðum, eða inni í stofu hjá okkur Ágústi eftir því sem hentar, en á morgun ætlum við að hittast á Reyðarfirði hjá fjölskyldu sem er tiltölulega ný farin að koma til okkar á samkomur.
Í kvöld ætlum við að horfa á júróvisjón og fengum til þess lánað sjónvarp Öldu og Unnars. Við ætlum að fá okkur ís, poppa og drekka Egils ananasdjús með. Ég hef ekki smakkað slíkt í mörg ár, amminamm.
En þetta var svona það helsta úr sveitinni í þetta skiptið.

2 comments:

Anonymous said...

Það er nú meira ástandið á einum bæ! Bara ömurlegt að vera lítill snúður með lungnabólgu;-(
Ég sendi bata-kveðju úr sveitinni og örlítið knús með;-)

Kveðja Iðunn

Anonymous said...

Já Iðunn, þetta var ekki gaman fyrir kútinn. En nú er honum batnað þó hann sé enn að hósta allt of mikið. Knús á ykkur!