Tuesday, August 25, 2009

Ég er svaka spennt fyrir morgundeginum því þá byrja ég að vinna. Hef ekki unnið utan heimilisins í rúm 4 ár svo það er pínu átak að hafa sig í þetta. En ég hlakka til að komast út úr húsi og vinna við það sem er mér kært, tónlist. Ég mun kenna á þverflautu við Tónlistarskólann á Egilsstöðum sem og vera með forskóla, en það er tónlistarundirbúningsnám fyrir 6 og 7 ára krakka. Það er ekki vitað enn hversu mörgum foskólahópum ég mun kenna, en það verður komið í ljós um miðjan mánuðinn. Læt ykkur vita á morgun hvernig hefur gengið!

Ýmsar myndir frá sumrinu.

Guðbergur Davíð keyrði bílinn sinn fram af hárri brún úr eldhúsinu inn í þvottahús og fékk í staðinn væna vör!


Gómsæt rúlluterta sem ég skreytti.


Gítar sem Steinunn Perla 14 ára gerði.


Og þetta er Steinunn Perla systurdóttir mín. Hún hjálpaði mér með börn og bú í sumar og er alveg æðisleg stelpa!
Posted by Picasa

1 comment:

Meðalmaðurinn said...

Vá hvað þið eruð mikilir tertusnillingar! Vona að þú standir við stóru orðin um meira blogg ;)