Thursday, November 20, 2008

Já já

Það er allt gott að frétta úr sveitinni. Þar sem ég er mjög upptekin af því að hafa snjó í kringum mig þá verð ég að segja ykkur það að í gærkvöldi snjóaði þessum líka fallega jólasnjó og hlakkaði ég til í alla nótt að kíkja út um gluggann nú í morgunsárið og var það ægi fagurt á að líta. Snjórinn er svo jólalagahlustunarhvetjandi.
Guðbergur Davíð er mjög upptekinn af tölvunni þar sem hann situr hér á gólfinu við hliðina á mér. Hann togar í allar þær snúrur sem hann finnur og tókst að draga þungan A4 blaðabunka undan tölvuskápnum og út á gólf. Ég hugsa að hann verði farinn að skríða fyrir jól. Hann verður 7 mánaða eftir 3 daga.
Sigurjón Óli er að læra fullt af lögum í leikskólanum. Ég hef aldrei heyrt hann syngja jafn mikið og undanfarið.
Nú er ný eldhúsinnrétting á teikniborðinu. Þetta er allt á byrjunarstigi en komið af stað og verður spennandi að sjá hvernig þetta endar.
Ekkert á dagskrá í dag annað en að reyna að koma kössum í lóg og vera í mömmu- og húsmóðurleik.
Tjá tjá for náv!

4 comments:

Anonymous said...

Hae hae!! Se thig fyrir mer horfandi ut um gluggan a alla fegurdina. Vid fengum pinsu pons snjokorn sidast lidin sunnudag, enn annars ekkert. Ad visu fekk borg i Indiana (c. klukkutima fra Chicago) alveg helling.

Anonymous said...

jæja, vonandi er snjórinn bara á leiðinni til ykkar! Sé fyrir mér Chicago á kafi í snjó og fólk að labba á milli búða í leit að jólagjöfum - eins og í bíómyndunum.....:o)

Anonymous said...

Almáttugur barnið að verða 7mánaða og fæddist í gær. Sys

Unknown said...

Já segðu sys! Hann hlakkar til að knúsa frænku sína um jólin!