Það er brjálað að gera hjá mér þessa dagana. Kennslan er farin af stað og tekur mjög langan tíma að undirbúa hana fyrir veturinn þannig að vel sé. Ágúst mætir eldsnemma í vinnuna 3 morgna í röð svo ég komist í mína vinnu eftir hádegið og erum við engan veginn að anna öllu á meðan þetta skipulag er að komast á koppinn. Við erum í góðu samstarfi við Öldu og Unnar uppi með að skutla og sækja, frábært að geta hjálpast svona að!
Ég kenni 5 unglingum 2x í viku á þverflatu í Tónlistarskólanum á Egilsstöðum og svo er ég með 3 hópa í Forskólakennslu, 1.og 2.bekk, 1x í viku. Morgnarnir fara í undirbúning kennslunnar og þann tíma verð ég líka að nota til að æfa mig á píanóið og þverflauutuna og reyna að halda heimilinu í horfinu. Ég kenni líka 6 ára stráknum á efri hæðinni á blokkflautu 2x í viku.
Ég er svo hamingjusöm þessa dagana, finnst svo gott að vera farin að kenna, þykir ósköp vænt um þetta fólk sem ég er að vinna með og finn að ég þarf að kenna til að þrífast. Ég hef ekki kennt í 4 ár svo þetta eru auðvita viðbrigði, en góð viðbrigði.
Margrét er al sæl í skólanum sínum og fer oft að leika við vinkonur eftir skóla, ýmist hér eða heima hjá þeim. Sigurjón Óli er miklu glaðari þennan veturinn í leikskólanum en í fyrra vetur. Hann er nú áfjáður í að læra að lesa og spila á blokkflautu. Guðbergur Davíð er veikur, með hita og kvef. Við erum reyndar öll með kvef, en það verður farið fyrr en varir.
En nú bara verð ég að halda áfram að skipuleggja kennsluna, það erskoh brjálað að gera hjá mér skoh eins og ég sagði skoh! en ég verð að standa við stóru orðin og blogga aðeins þó ekki fari mikið fyrir bröndurum eða skopsögum af fjölskyldumeðlimum eins og svo oft áður. Lifið heil! Vikan er hálfnuð!
1 comment:
good luck eins og sagt er á ensku. Alltaf gaman að lesa eða heyra að fólk er hamingjusamt og sátt við lífið. Gaman að fylgjast með þér og þínum. Haltu áfram að blogga. Knús og kossar frá sólinni á Hawaii. Sem er farið þó að langa í smá snjó og kulda.
Post a Comment