Staðan er þannig núna að Sigurjón Óli og Ágúst er báðir orðnir veikir. Margrét veiktist semsé á fimmudag ca., Sigurjón Óli á föstudag, Ágúst á laugardag og Davíð uppi og Árni Jökull hinum megin á sunnudag. Ég ætla ekki að leggjast í þessa flensu, enda þarf ég að sinna hinum. Þegar ég hringdi í morgun í leikskólann hans SÓ og tilkynnti hann veikan, sagði kennarinn mér að við værum nr.9 sem tilkynntum veikindi þann morguninn svo því virðist vera að flensurnar séu skollnar á okkur Austlendinga af fullum þunga. Guðbergur Davíð er enn með pínu hor en ekkert veikur. Þannig var það ágætu lesendur!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Hæ-hæ Kolbrún. Ég var eimitt að inna þig eftir í morgun hvernig heilsufari ykkar væri háttað. Mundu BARA að flensusjúklingar eiga að halda sig lengi heima eftir að þeir eru orðnir hitalausir eða virðast alveg vera orðnir góðir. Kveðja til ykkar og góðar batahorfur frá mömmu .
Takk mamma, ég sá einmitt að þú skrifaðir comment og þess vegna skrifaði ég svolítið í gær. Ég ætla að reyna að blogga núna smá á hvejum degi til að þið ömmurnar getið fylgst með. KNÚS!
Post a Comment