Tuesday, October 20, 2009

Einn bætist í hópinn........

..........og það er ég. Er með þyngsli fyrir brjóstinu og vísi að beinverkjum. Þetta er nú samt allt í lagi ennþá, en ég held ég ætti ekki að fara til vinnu í dag. Ágúst er að hósta svolítið mikið, SÓ líður betur en áður en er að hósta líka sem og MM. Hún var reyndar slappari í gær en hún hefur verið.
Hér er hiti í frostmarki og snjóalegt að sjá. Kannski við fáum nokkur snjókorn í dag, svona til að minna á jólaskapið, en ég er farin að hlakka mikið til jólanna og 66 dagar þar til jóladýrðin skellur á :o)

1 comment:

Anonymous said...

Hæ-hæ Kolbrún. Ég kunni ekki á commentið þ.e. að senda það en reyndi þar til það tókst. Nú verð ég eins og slitin plata þegar ég endurtek: Munið að fara rosalega varlega þegar þið farið að hressast. Takk-takk fyrir bloggið þitt. Kveðja frá mömmu og pabba. Búið að flensusprauta Fanney-Bóbó og Ayu.